Marshallhúsið/The Marshall house
Meðan allir voru heima á íslandi á fullu á hönnunarmars þá missti ég af herlegheitunum. Hef búið erlendis í 10 ár núna og hef einungis einu sinni náð að vera á íslandi yfir þennan viðburð :/ en ég ég mun skipuleggja ferð heim á næsta ári. Ég fylgist samt allfar stíft með og þá sérstaklega fylgist ég með Svönu vinkonu á Svart Á Hvítu þar sem hún er alltaf með puttan á púlsinum. En einnig var margt mjög spennandi arkitektúr tengt sem ég hefði svo viljað sjá. Eitt af því var túr um Marshallhúsið á Grandagarði 20. Kíkti þarna inn síðast þegar ég var á landinu og skil vel að þair haf i hlotið Hönnunarverðlaun Íslands 2017 fyrir uppgerð hússins. Þetta er mjög heilstreypt og vel gert. Hrátt og elegant á sama tíma. ____________ While Design march was going on in Iceland last weekend I was here in Copenhagen... wishing to be there... I have been living abroad for 10 years now and only once have I planned a trip to be at this great event. I will definitely be there next year! I follow what is going on ... and my friend Svana covers much of it on her blog . But there were so many interesting architecture events this year I would have loved to see... including a tour in the Marshall house. The Marshall house was the winner of The Icelandic Design Awards 2017 and is for sure worthy of it. MARSHALLHÚSIÐ / The Marshall house Listamiðstöðin Marshallhúsið opnaði í mars 2017 og hýsir Nýlistasafnið og Kling & Bang en auk þess er þar vinnustofa og sýningarrými Ólafs Elíassonar og veitingastaðurinn Marshall Restaurant + Bar.
Arkítektarnir Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason frá stofunni Kurt og pí, önnuðust hönnun breytinga á húsinu í samstarfi við ASK arkitekta. _________ The art center opened in march 2017 and is hosting the Modern art gallery and Kling & Bang gallery, it is the home of the Icelandic/Danish artist Ólafur Elíassons office and showroom as well as housing the Mashall Restaurant + Bar. The architects Ásmundur Hrafn Sturluson and Steinþór Kári Kárason from Kurt og Pí were in charge of the design of the new Marshall house in collaboration with ASK architects . Þetta fallega hús var byggt árið 1949, sem hluti af síldarbræðslu, og var starfsemi þar í rúma hálfa öld. Húsið stóð autt í nokkur ár eftir að fiskmjöls og -lýsisvinnsla var aflögð á vegum HB Granda í Reykjavík. Húsið er á fjórum hæðum, samtals 1.839 fermetrar að stærð. _________ This beautiful house was built in 1949, as part of herring smelter, and was there for over half a century. The house remained empty for a few years after fishmeal and fish oil production was discontinued by HB Grandi in Reykjavík. The house is on four floors, total of 1,839 square meters. Í rökstuðningi dómnefndar við Hönnunarverðlaun Íslands, segir að verkið kristalli vel heppnaða umbreytingu eldra iðnaðarhúsnæðis fyrir nýtt hlutverk í samtímanum. „Arkitektarnir hafa þróað verkefnið frá hugmyndavinnu til útfærslu og leitt saman breiðan hóp aðila til að skapa heilsteypt verk. Í verkinu er vel unnið með sögu byggingarinnar og samhengi staðar og til verður nýr áfangastaður fyrir samtímalist í Reykjavík á áhugaverðu þróunarsvæði í borginni. Marshall húsið er gott dæmi um hvernig með aðferðum hönnunar verður til nýsköpun í borgarumhverfinu.“ Hönnunarverðlaun Íslands 2017. __________ According to the jury's verdict at the Icelandic Design Prize; the work crystallizes the successful transformation of old industrial buildings for a new contemporary role. "The architects have developed the project from conceptualization to implementation and brought together a wide group of people to create a holistic piece. The work carefully respects the history of the building and context, and creates a new destination for contemporary art in Reykjavik in an interesting development area in the city. The Marshall House is a good example of how design methods will be innovative in the urban environment. "The Icelandic Design Prize 2017. Þessar flísar eru bara beautiful... / gorgeous tiles... Þangað til næst... The Icelandic Architect